Alltaf minn fyrsti kostur að vera áfram hjá Celtic 13. júní 2007 06:00
Theodór Elmar Bjarnason var nýbúinn að skrifa undir framlengingu á samningi sínum við Celtic þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gær. Samningurinn er til tveggja ára en Celtic getur bætt ári við hann kjósi félagið að gera það. Theodór var að verða samningslaus og höfðu mörg félög falist eftir kröftum hans. „Þeir féllust á allt og voru ánægðir með mig í landsleikjunum sem þeir fylgdust með," sagði Theodór sem fékk launahækkun frá fyrrverandi samningi. „Ég get ekki annað en verið mjög sáttur með samninginn." Þrátt fyrir áhuga annara liða, og þá staðreynd að Kjartan Henry Finnbogason mun fara frá félaginu, flaug það aldrei í hug Theodórs að flytja sig um set. „Ég var bara að bíða eftir því hvað þeir sögðu við samningstilboðinu okkar. Þegar þeir samþykktu það kom ekki annað til greina en að skrifa undir og vera áfram í Skotlandi. Celtic var alltaf minn fyrsti kostur," sagði Theodór sem setur markið hátt. „Ég hef sett mér það markmið að festa mig í sessi í liðinu og spila sem mest. Vonandi fæ ég nægan leiktíma og mig langar mjög mikið til að spila í Meistaradeildinni, sem og öðru auðvitað." Celtic vann tvöfalt í Skotlandi í ár en líklegt er að félagið kaupi til sín nokkra leikmenn í sumar, auk þess sem nokkrir hverfa á braut. „Félag eins og Celtic leitast alltaf eftir því að styrkja hópinn. Hjá svona stóru félaginu eru alltaf einhverjir sem koma og fara. Það verður næg samkeppni en það fylgir því að vera í stórliði," sagði Theodór sem fer til æfinga hjá Celtic þann 2.júlí þegar liðið kemur til æfinga eftir sumarfrí.
Fótbolti Mest lesið Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti „Það var ekkert í heiminum að fara breytast“ Sport Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Fótbolti Real Madrid goðsögn fallin frá Fótbolti „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ Handbolti Fleiri fréttir „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Isak byrjar hjá Liverpool en Salah er aftur á bekknum Hættur að þjálfa Messi fjórum mánuðum eftir titilinn Uppgjörið: Ísland - Úkraína 1-0 | Stelpurnar okkar nældu í þrjú stig Thelma Karen í byrjunarliðinu „Þau gefa okkur ótrúlega mikið með því að sýna okkur áhuga“ Iraola yfirgefur Bournemouth Vill sjá styttri leiki með engum spjöldum og fleiri mörkum „Trúum því að við getum gert eitthvað sérstakt“ Viðbrögðin við ráðningu kvenþjálfara „vandræðaleg“ „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Sjá meira