Innlent

Jafnrétti í launum vottað af ríkinu

Ingi Valur Jóhannsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu, Guðrún Erlendsdóttir, formaður nefndar, og Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra kynntu afrakstur nefndar á blaðamannafundi í gær. Meðal annars er stefnt að því að aflétta launaleynd í nýju frumvarpi um jafnréttismál.
Ingi Valur Jóhannsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu, Guðrún Erlendsdóttir, formaður nefndar, og Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra kynntu afrakstur nefndar á blaðamannafundi í gær. Meðal annars er stefnt að því að aflétta launaleynd í nýju frumvarpi um jafnréttismál. MYND/GVA

Nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins vinnur að því að móta mælitæki til að votta jöfn laun karla og kvenna hjá fyrirtækjum. Þetta er gert í samvinnu við alla háskólana í landinu. Vonir standa til að undirbúningur hefjist fljótlega og hugsanlega verði hægt að taka það í notkun síðar á árinu.

Ingi Valur Jóhannsson, deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu, segir að leitað hafi verið leiða til að mæla jafnrétti í fyrirtækjum og finna út hvernig væri hægt að mæla launakerfin. Í Evrópu séu til aðferðir til að mæla jafnrétti. „Okkur datt í hug hvort væri hægt að nota gæðavottunarfyrirkomulagið til að mæla laun og launamun kynjanna í fyrirtækjum. Það hefur hvergi tekist í heiminum en við erum að vinna að þessu og erum komin á mjög áhugaverða slóð,“ segir Ingi Valur.

Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri leggur áherslu á að launavottunarfyrirkomulagið eigi að virka hvetjandi á fyrirtækin og verði unnið í samstarfi við vinnumarkaðinn en mjög jákvæð viðbrögð hafi fengist þaðan.

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra kynnti í gær frumvarp til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, sem nefnd undir forsæti Guðrúnar Erlendsdóttur, fyrrverandi hæstaréttardómara, vann. Ef frumvarpið nær fram að ganga verður meðal annars launaleynd aflétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×