Fótbolti

Ömurlegt að skilja strákana eftir í skítnum

Hann var stuttur opnunarleikur Íslandsmótsins fyrir Skagamanninn Árna Thor Guðmundsson sem fékk að líta rauða spjaldið eftir aðeins 24 mínútna leik gegn Íslandmeisturum FH á laugardaginn. Árni Thor fékk þá sitt annað gula spjald en í því fyrra varði hann skot FH-ingsins Sigurvins Ólafssonar með hendi og gaf víti.

„Þetta var erfitt og mikið kjaftshögg í byrjun móts en svona eru hlutirnir. Ef maður er ekki nægilega einbeittur og gerir svona mistök þá fær maður það bara í andlitið. Maður lærir bara af þessu,“ segir Árni Thor Guðmundsson sem er á sínu öðru ári upp á Akarnesi og fékk bara tvö gul spjöld í 16 leikjum síðasta sumar.

„FH-ingar eru með hörkulið en við sýndum mikla baráttu og mikinn dugnað eftir að ég fer út af. Við börðumst vel og sýndum þeim enga miskunn,“ segir Árni Thor sem hrósar leikmönnum tíu sem stóðu eftir. „Það er ömurlegt að skilja strákana eftir í skítnum en þeir stóðu sig alveg frábærlega,“ segir Árni sem er bjartsýnn fyrir tímabilið.

„Mér lýst vel á sumarið, við erum í toppformi og Guðjón er að gera frábæra hluti. Við erum mjög sáttir hvernig hann er að koma að liðinu. Þetta verður mjög spennandi og skemmtilegt sumar,“ segir Árni Thor og hann kvartar ekkert undan ísbaðinu margfræga.

„Manni fannst þetta kannski klikkun fyrst en þetta er bara hluti af dagskránni hjá okkur og þetta skilar sér. Ég finn klárlega mun á mér. Eftir erfiðar æfingar þá finnur maður strax hvað maður er fljótari að jafna sig. Þetta er líka þekkt út um allt í þessum atvinnumannaboltanum,” segir Árni Thor sem verður í banni á móti HK í næsta leik. Hann ætlar hins vegar að vera klár gegn Fram í 3. umferð.

„Ég ríf mig bara upp úr þessu og mæti tvíefldur til leiks. Nú er bara málið fyrir mig að koma sterkur til baka og sýna hvað í mér býr. Nú fyrst sýnir maður úr hverju maður er gerður og hvort að maður sé maður eða mús. Það gengur ekki að láta eitthvað svona hafa áhrif á sig,“ segir Árni Thor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×