Ömurlegt að skilja strákana eftir í skítnum 14. maí 2007 13:00
Hann var stuttur opnunarleikur Íslandsmótsins fyrir Skagamanninn Árna Thor Guðmundsson sem fékk að líta rauða spjaldið eftir aðeins 24 mínútna leik gegn Íslandmeisturum FH á laugardaginn. Árni Thor fékk þá sitt annað gula spjald en í því fyrra varði hann skot FH-ingsins Sigurvins Ólafssonar með hendi og gaf víti. „Þetta var erfitt og mikið kjaftshögg í byrjun móts en svona eru hlutirnir. Ef maður er ekki nægilega einbeittur og gerir svona mistök þá fær maður það bara í andlitið. Maður lærir bara af þessu,“ segir Árni Thor Guðmundsson sem er á sínu öðru ári upp á Akarnesi og fékk bara tvö gul spjöld í 16 leikjum síðasta sumar. „FH-ingar eru með hörkulið en við sýndum mikla baráttu og mikinn dugnað eftir að ég fer út af. Við börðumst vel og sýndum þeim enga miskunn,“ segir Árni Thor sem hrósar leikmönnum tíu sem stóðu eftir. „Það er ömurlegt að skilja strákana eftir í skítnum en þeir stóðu sig alveg frábærlega,“ segir Árni sem er bjartsýnn fyrir tímabilið. „Mér lýst vel á sumarið, við erum í toppformi og Guðjón er að gera frábæra hluti. Við erum mjög sáttir hvernig hann er að koma að liðinu. Þetta verður mjög spennandi og skemmtilegt sumar,“ segir Árni Thor og hann kvartar ekkert undan ísbaðinu margfræga. „Manni fannst þetta kannski klikkun fyrst en þetta er bara hluti af dagskránni hjá okkur og þetta skilar sér. Ég finn klárlega mun á mér. Eftir erfiðar æfingar þá finnur maður strax hvað maður er fljótari að jafna sig. Þetta er líka þekkt út um allt í þessum atvinnumannaboltanum,” segir Árni Thor sem verður í banni á móti HK í næsta leik. Hann ætlar hins vegar að vera klár gegn Fram í 3. umferð. „Ég ríf mig bara upp úr þessu og mæti tvíefldur til leiks. Nú er bara málið fyrir mig að koma sterkur til baka og sýna hvað í mér býr. Nú fyrst sýnir maður úr hverju maður er gerður og hvort að maður sé maður eða mús. Það gengur ekki að láta eitthvað svona hafa áhrif á sig,“ segir Árni Thor.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ofurhlaupari lést á skoska hálendinu Sport Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rekinn rétt fyrir HM Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Þorsteinn og Glódís sátu fyrir svörum fyrir leik við England Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Búningsklefi FC Basel eyðilagðist í bruna Al Hilal ekki lengur í eigu ríkissjóðsins Vonar að Wood sé ekki alvarlega meiddur Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Messi keypti spænskt fótboltafélag Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Forest sló tíu Porto-menn út og mætir Villa í undanúrslitum NSÍ Runavík heldur áfram góðri byrjun undir stjórn Sigga Ragga Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda „Hann mun líklega missa starfið, án þess að eiga það skilið“ Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Messi lögsóttur fyrir að spila ekki vináttuleik Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Leikmenn Arsenal völdu Rice sem fyrirliða Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Átti Camavinga skilið spjald? „Ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu“ Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real „Ég get ekki breytt þessu“ Sjá meira