Enski boltinn

Á förum frá Liverpool

Robbie Fowler mun um helgina leika sinn síðasta leik með Liverpool á ferlinum. Það staðfesti framherjinn í gær en hann fær ekki nýtt samningstilboð frá félaginu.

„Ég hef ekkert hugsað um framtíð mína fjarri Liverpool,“ sagði hinn vinsæli Fowler við staðarblöð í Liverpool. „Stjórinn útskýrði stöðuna fyrir mér í vikunni og niðurstaðan kom mér ekkert á óvart ef ég á að vera heiðarlegur.“

Fowler fær væntanlega ljúfar móttökur fyrir leikinn gegn Charlton og eflaust eiga einhverjir stuðningsmenn félagsins eftir að fella tár þegar hann gengur af Anfield í hinsta skipti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×