Alltof stórt tap hjá strákunum í gær 5. maí 2007 06:00 Kristinn Jónsson hughreystir hér félaga sinn, Hólmar Örn Eyjólfsson, eftir leikinn við Holland í gær. Fréttablaðið/Aleksandar Djorovic
Íslenska 17 ára landsliðið er enn stigalaust og markalaust eftir fyrstu tvo leikina í úrslitakeppni stórmóts. Íslensku strákarnir töpuðu 0-3 fyrir Hollandi í gær eftir 0-2 tap fyrir Englendingum í fyrsta leiknum. Íslensku strákarnir léku betur en gegn Englandi og því var sárt að tapa leiknum svona stórt. „Strákarnir spiluðu mun betur en í fyrsta leiknum og tapið var alltof stórt. Þeir áttu kannski skilið að vinna okkur en aldrei meira en 1-0. Þeir voru að skora skrítin mörk og sköpuðu sér ekki eitt einasta dauðafæri í leiknum," sagði Lúkas Kostic, þjálfari íslenska liðsins, eftir leikinn. „Liðið er mjög vaxandi og ég geta ekki verið annað en ánægður með frammistöðuna þó að ég sé dapur yfir því að hafa tapað þessum leik með þremur mörkum. Strákarnir voru að gera þetta vel, þeir lásu vel í þennan mikla hraða sem er í þessum leikjum og náðu að svara hollenska liðinu bæði í sókn og vörn," sagði Lúkas. Daley Blind skoraði tvö fyrstu mörk hollenska liðsins í leiknum með þrumuskotum en hann hefur nýverið gert atvinnumannasamning við Ajax. Blind fetar þar í fótspor föður síns Danny sem lék með Ajax í þrettán ár og alls 42 landsleiki fyrir Holland. Blind lék ekki fyrsta leikinn þar sem hann var í leikbanni. Íslensku strákarnir brutu alls 31 sinni af sér og fengu alls að líta sex gul spjöld hjá norður-írska dómaranum Alan Black. Íslensku strákarnir voru spjaldalausir í fyrsta leiknum þannig að enginn er kominn í leikbann fyrir þriðja leikinn. „Dómari leiksins dæmdi örugglega yfir 50 aukaspyrnur í leiknum og meira að segja hollensku áhorfendurnir púuðu á hann. Það var út í hött að við vorum að fá sex gul spjöld í þessum leik," sagði Lúkas. Kolbeinn Sigþórsson lék sinn fyrsta leik á mótinu og kláraði hann þrátt fyrir að hafa fundið aðeins fyrir meiðslunum í seinni hálfleik. „Kolbeinn var öflugari og öflugari eftir því sem leið á leikinn. Hann átti þrumuskot undir lokin sem markvörðurinn rétt náði að verja. Það var kannski flottasta skotið í leiknum en fór ekki inn. Hann spilaði mjög vel og vann öll skallanávígi. Hann var mjög flottur og það er klassi yfir drengnum," sagði Lúkas um Kolbein. „Ég lagði áherslu á að strákarnir myndu læra að spila betri knattspyrnu á þessu móti. Þeir eru búnir að sýna framfarir en ég set aldrei kröfur á þá að við eigum að vinna leikina. Ég myndi verða hamingjusamasti maðurinn í heiminum ef strákarnir myndu vinna Belgíu og komast til Kóreu. Þá verðum við allir svakalega glaðir," sagði Lúkas. Ísland mætir Belgíu í lokaumferð riðlakeppninnar á mánudaginn og þarf að sigra til að komast í leikinn um 5. sætið á mótinu. Sigurvegarinn í þeim leik tryggir sér sæti á HM í Suður-Kóreu í ágúst og september. Ísland á ekki lengur möguleika á að komast í undanúrslitin eftir þessi tvö töp.
Fótbolti Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Ken Bates látinn Enski boltinn Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Sjá meira