Erlent

Bandaríkjaþing viðurkenni þjóðarmorð á Armenum

Tyrklandsforseti tók það óstinnt upp í dag þegar utanríkismálanefnd Bandaríkjaþings viðurkenndi þjóðarmorð á Armenum.
Tyrklandsforseti tók það óstinnt upp í dag þegar utanríkismálanefnd Bandaríkjaþings viðurkenndi þjóðarmorð á Armenum. MYND/Getty

Frumvarp sem viðurkennir þjóðarmorð Tyrkja á Armenum liggur nú fyrir bandaríska þinginu. Utanríkismálanefnd þingsins samþykkti frumvarpið í dag þrátt fyrir hávær mótmæli Tyrkja og tilmæli frá Hvíta húsinu þess efnis að gera það ekki. Abdullah Gul, nýkjörinn forseti Tyrklands lýsti því yfir í dag að ákvörðun nefndarinnar væri óásættanleg.

BBC segir að ákvörðun nefndarinnar að viðurkenna að fjöldamorð á Armenum 1915 skuli flokkast sem þjóðarmorð hafi valdið miklum vonbrigðum innan veggja Hvíta hússins. Tyrkir eru mikilvægir bandamenn Bandaríkjanna í Írak og fljúga bandaríkjamenn um lofthelgil landsins þegar vistum og hergögnum er komið til Írak.

Nú er fátt talið geta komið í veg fyrir að þjóðarmorðið verði viðurkennt á Bandaríkjaþingi. Talið er að rúmlega 1,5 milljón Armena hafi látið lífið árið 1915 þegar tyrkneskir hermenn fluttu þá nauðungarflutningum frá austurhluta landsins. Óttuðust Tyrkir að Armenar kæmu Rússum til hjálpar en þeir höfðu ráðist inn í Tyrkland. Talið er að Tyrkir hafi framið fjölmörg fjöldamorð á meðan á nauðungarflutningunum stóð auk þess sem þúsundir hafi látist þegar fólkið var látið ganga í gegnum eyðimörkina í átt til Mesópótamíu þar sem nú er Írak.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×