Erlent

Réðust inn í Liechtenstein

Nærri tvö hundruð fótgönguliðar í svissneska hernum réðust óvart inn í nágrannaríkið Liechtenstein aðfaranótt fimmtudags, en sem betur fer tók enginn heimamanna eftir „innrásinni“.

Svissnesku hermennirnir voru á ósköp venjulegri heræfingu í niðamyrkri þegar þeir villtust og vissu ekki fyrr en þeir voru komnir tvo kílómetra yfir landamærin.

Embættismenn í báðum löndunum sögðu ólíklegt að þessi vandræðalegu mistök myndu hafa nokkur eftirmál.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×