Erlent

Segir Hillary illgjarna konu

Newt Gingrich sagði ómögulegt að sigra Clinton og lið hennar með herkænsku. Til þes væri það of vel skipulagt og vægðarlaust.
Newt Gingrich sagði ómögulegt að sigra Clinton og lið hennar með herkænsku. Til þes væri það of vel skipulagt og vægðarlaust.

Newt Gingrich, fyrrverandi forseti neðri deildar bandaríska þingsins, kom mörgum á óvart með ummælum sínum um að Hillary Clinton væri „illgjörn kona“ sem ræki „endalaust vægðarlausa“ kosningavél í berorðu viðtali við New York Post í fyrradag.

Þetta þykir koma á óvart þar sem Gingrich, sem er repúblikani, hefur áður hrósað hæfileikum Clinton og vann með henni undanfarið ár að heilbrigðismálum.

Í viðtalinu sagðist Gingrich ætla að ákveða á næstu mánuðum hvort hann myndi sækjast eftir tilnefningu Repúblikanaflokksins til forseta Bandaríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×