Erlent

Nicolas Sarkozy eykur forskotið

Skopstyttur af Sarkozy og Royal í kjötkveðjuhátíðargöngu í Köln.
Skopstyttur af Sarkozy og Royal í kjötkveðjuhátíðargöngu í Köln. MYND/AP

Segolene Royal, forsetaefni franskra sósíalista, á nú í vök að verjast í kosningabaráttunni. Samkvæmt nýjustu viðhorfskönnunum er forskot höfuðkeppinautarins, Nicolas Sarkozy úr íhaldsflokknum UMP, sífellt að aukast.

Þegar kjósendur eru beðnir að gera upp á milli þeirra tveggja, eins og sennilegast er að gerist í síðari umferð kosninganna 6. maí, segjast nú 55 af hundraði styðja Sarkozy og 45 prósent Royal.

Royal hefur ákveðið að stokka upp í ráðgjafahópi sínum í kosningabaráttunni, og kemur sú uppstokkun til framkvæmda í vikunni. Tveir mánuðir eru nú til fyrri umferðar kosninganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×