Erlent

Lítil hreyfing í átt að sátt

Þríhliða fundur Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, með Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, fór fram í Jerúsalem í gær, en vonir sem fyrir fram höfðu verið bundnar við að hann kynni að marka nýjan áfanga í friðarumleitunum brugðust.

Fundurinn stóð yfir í hálfa aðra klukkustund og að honum loknum ávarpaði Rice fréttamenn stuttlega. Hún greindi frá því að Olmert og Abbas hefðu skipst á skoðunum um framvinduna í stjórnmálunum og ákveðið að hittast aftur.

Hvorki Olmert né Abbas tóku þátt í blaðamannafundinum með Rice. Hún svaraði heldur ekki spurningum eftir að hafa flutt ávarpið.

Síðar lét Olmert hafa eftir sér að hann og Abbas hefðu orðið ásáttir um að halda opnum samskiptum sín í milli, „sem miðuðu að því fyrst og fremst að bæta lífsskilyrði palestínsks almennings á hinum ýmsu sviðum, og að sjálfsögðu að palestínska heimastjórnin héldi áfram baráttu gegn hryðjuverkum - í reynd - til að stöðva hryðjuverk með öllu."

Þeir Abbas og Olmert ræddu einnig að vopnehléssamkomulag á Gazasvæðinu, sem gert var fyrir þremur mánuðum, yrði einnig látið ná til Vesturbakkans, að því er Saeb Erekat, samningamaður Palestínumanna, greindi frá.

Það dró úr væntingum til fundarins að bæði Ísraelar og Bandaríkjamenn höfðu lýst nýgerðu samkomulagi palestínsku fylkinganna í Hamas og Fatah um að semja um myndun þjóðstjórnar sem ófullnægjandi. Krafan er sú að palestínska stjórnin, hvernig sem hún er samsett, viðurkenni Ísraelsríki og fyrri friðarsamninga og afneiti ofbeldi.

Öll þrjú, Abbas, Olmert og Rice, ítrekuðu að fast skyldi haldið við leiðarvísinn til friðar, sem hefur að markmiði að koma á varanlegum friðarsamningi og stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna, og voru sammála um að lausn á deilunni myndi ekki „spretta úr ófriði," að sögn Rice.

Ákveðið var að halda annan slíkan leiðtogafund, en ekki hvenær hann færi fram. Rice sagðist gera ráð fyrir að snúa aftur fljótlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×