Erlent

Nautasæði nýtt sem hárnæring

Hárgreiðslumaður í Knightsbridge-hverfinu í London býður viðskiptavinum sínum upp á nýstárlega næringarmeðferð þar sem sæði úr nautum leikur stórt hlutverk.

Hárgreiðslumaðurinn, Hari Salem, blandar vökva unnum úr próteinríkum plönturótum við sæðið og nuddar blöndunni í hár viðskiptavinarins eftir þvott. Þá er blöndunni leyft að síast inn í hárið og að lokum þurrkað.

„Ég hef lengi leitað að svona lífrænni og próteinríkri vöru því úr því það er einmitt það sem hárið skortir þegar það er þurrt,“ segir Salem. „Sæðið er kælt fyrir notkun og lyktar ekki illa. Það gerir hárið yndislega mjúkt og þykkt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×