Erlent

Marglit og daun-ill snjókoma

Rússneskir snjókarlar. Fólki er ráðlagt að láta það vera að byggja snjókarla úr litsnjónum. Þessir standa í Moskvu.
Rússneskir snjókarlar. Fólki er ráðlagt að láta það vera að byggja snjókarla úr litsnjónum. Þessir standa í Moskvu. MYND/AP

Björgunarsveitir hafa verið sendar til Omsk-héraðs í Síberíu eftir að illa þefjandi, marglitur snjór féll á um 100 ferkílómetra svæði fyrr í vikunni.

Omsk-hérað er um 2.250 km austur af Moskvu. Þar féll gulur, grænn og appelsínugulur snjór á miðvikudag. Að sögn talsmanna rússneska almannavarnaráðuneytisins var hann jafnframt daunillur og olíukenndur. Reynt verður að komast að orsakavaldinum, en veðurfræðingar röktu hina menguðu úrkomu til grannríkisins Kasakstans. Þótt beðið væri niðurstaðna úr rannsóknum á sýnum virtist íbúum ekki stafa bráð hætta af hinum litskrúðuga snjó.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×