Vill samvinnu lýðræðisafla 23. janúar 2007 05:45
Forseti Serbíu skoraði í gær á lýðræðissinnaða stjórnmálaflokka landsins að leggja ágreiningsmál sín til hliðar og taka höndum saman um að mynda samsteypustjórn, eftir að flokkur herskárra þjóðernissinna varð stærsti flokkurinn á þingi samkvæmt niðurstöðum kosninga sem fram fóru í landinu á sunnudag. Hið mikla kjörfylgi þjóðernissinna, sem fengu 28,3 prósent atkvæða, er ekki síst rakið til þess að spurningin um framtíð Kosovo-héraðs er nú mjög ofarlega á dagskrá. Strax í næstu viku er von á sérlegum erindreka Sameinuðu þjóðanna til Belgrad til að skila af sér tillögu að framtíðarfyrirkomulagi á þjóðréttarlegri stöðu Kosovo. Kosovo-Albanar, sem eru í yfirgnæfandi meirihluta íbúa í héraðinu, vilja fullt sjálfstæði en serbneskir þjóðernissinnar líta á héraðið sem óaðskiljanlegan hluta Serbíu. Bozidar Djelic, sem talinn er líklegasta forsætisráðherraefni lýðræðisflokkanna, lagði á það áherslu í gær að birting SÞ-tillagnanna gæti spillt fyrir ríkisstjórnarmyndun, og ef þær gengu út á að Kosovo hlyti sjálfstæði myndu þær aðeins verða til að efla þjóðernissinna enn frekar. Fastlega er reiknað með að tillögurnar hljóði upp á skilyrt fullveldi Kosovo til handa. Að hinni eldfimu Kosovodeilu frátalinni eru fleiri mál sem auðveldlega geta gert stjórnarmyndunarumleitanir erfiðar. Þar á meðal er hvernig taka skal á framsali á eftirlýstum meintum stríðsglæpamönnum, svo hvaða leiðir skuli reynt að fara til að rjúfa einangrun Serbíu og mjaka landinu nær því að fá að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. „Nýja ríkisstjórn verður að mynda hið snarasta," sagði Boris Tadic, forseti Serbíu, en Lýðræðisflokkur hans fékk flest atkvæði, 22,6 prósent, að frátöldum flokki þjóðernissinna sem heldur hugmyndafræði Slobodans Milosevic heitins í hávegum. Tadic sagði að hann myndi fela þeim stjórnarmyndunarumboðið sem bestar horfur hefði á því að ná árangri í að koma saman meirihlutastjórn lýðræðisaflanna. Leiðtogi þjóðernissinna, Tomislav Nikolic, sagði í gær að Tadic ætti að fela stærsta flokknum á þingi stjórnarmyndunarumboðið. „En ég veit að hann mun ekki gera það," sagði Nikolic og spáði því að kosið yrði á ný áður en þetta ár væri úti þar sem „hinir svokölluðu lýðræðissinnar geta ekki komið sér saman um nokkurn hlut, hvað þá um nýja ríkisstjórn".
Mest lesið Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Erlent „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Innlent Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Erlent Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Innlent Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Innlent Ný samræmd próf lögð fyrir Innlent Kjartan er kominn heim til Íslands Innlent WhatsApp-skilaboð Auðuns til konunnar ekki metin gild Innlent Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri Erlent Telur Trump enn girnast Grænland Erlent Fleiri fréttir Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Telur Trump enn girnast Grænland Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Talin hafa myrt móður sína og stjúpbróður fyrir skotárásina Sjá meira