Erlent

Norður-Kóreumenn komnir til Peking

Hill, aðalsamningamaður Bandaríkjamanna og aðstoðarutanríkisráðherra.
Hill, aðalsamningamaður Bandaríkjamanna og aðstoðarutanríkisráðherra. MYND/AP

Norðurkóresk sendinefnd kom til Peking í morgun til viðræðna við bandaríska sendinefnd. Norður-Kóreumenn hafa neitað að snúa aftur til viðræðna sex landa um afvopnun nema fyrst verði gengið frá því að aflétta viðskiptahindrunum.

Fyrir utan viðskiptaþvinganir Sameinuðu þjóðanna sem lagðar voru á kommúnistaríkið eftir kjarnorkutilraun í októberbyrjun, hafa Bandaríkin einnig lagt sérstakar viðskiptahindranir á ríkið, og þeim vilja Norður-Kóreumenn að verði aflétt áður en gengið er til samningaviðræðna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×