Erlent

Gates í heimsókn í Bagdad

Robert Gates sór embættiseið á mánudaginn.
Robert Gates sór embættiseið á mánudaginn. MYND/AP

Robert Gates, nýskipaður varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, kom til Bagdad í Írak í morgun. Hann hefur einungis gegnt embættinu í tvo daga og má af því sjá hvað nýja ráðherranum er efst í huga. Gates mun funda með herforingjum í Bandaríkjaher og kynna sér stríðið sem hann heldur fram að herinn sé hvorki að tapa né vinna.

Heimsókn Gates fylgir í kjölfar Pentagon-skýrslu þar sem segir að ofbeldi í Írak hefði aldrei verið meira frá því stríðinu við Saddam-stjórnina lauk þar. Þar sagði einnig að fjöldi bandarískra hermanna væri að nálgast 3.000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×