Erlent

Brást trausti neytenda

Lars Barfoed
Lars Barfoed

Barfoed afhenti í gær Margréti drottningu bréf sem tilkynnti uppsögn hans sem fjölskyldu- og neytendaráðherra Danmerkur.

Hann greip til þessa ráðs skömmu eftir að Danski þjóðarflokkurinn lýsti andstöðu við hann sem ráðherra á miðvikudagskvöld, en þar með var meirihluti þingmanna orðinn andsnúinn honum.

Barfoed þótti hafa brugðist trausti almennings með því að bregðast ekki nógu hart við endurteknum vandamálum tengdum hreinlæti í matvælavinnslu og matvælaöryggi.

Ekki er gert ráð fyrir að brotthvarf Barfoeds ógni samsteypustjórninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×