Erlent

Johnson sýnir viðbrögð við snertingu og orðum

Tim Johnson.
Tim Johnson. MYND/AP

Tim Johnson, öldungadeildarþingmaður demókrata í Suður-Dakóta, sýnir bæði viðbrögð við snertingu og orðum samkvæmt lækni hans en þingmaðurinn gekkst undir aðgerð á heila í gær eftir alvarlegt heilablóðfall á miðvikudag.

Aðgerðin þykir hafa tekist vel en hann liggur enn á gjörgæsludeild. Veikindi Johnsons stefna meirihluta demókrata í öldungadeildinni í tvísýnu því samkvæmt reglum Suður-Dakóta á ríkisstjóri að skipa nýjan þingmann ef Johnson tekst ekki að ljúka kjörtímabilinu. Núverandi ríkisstjóri er repúblikani og líklegt að hann tilnefni flokksbróður sinn á þing. Það myndi þýða að demókratar og repúblikanar ættu jafnmarga fulltrúa í öldungadeild og í þeirri stöðu er varaforseti Bandaríkjanna, repúblikaninn Dick Cheney, í oddastöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×