Erlent

Kennsl borin á fjórðu konuna

Breska lögreglan leitar raðmorðingja í Ipswich.
Breska lögreglan leitar raðmorðingja í Ipswich. MYND/AP

Kennsl hafa verið borin á fjórðu konuna af þeim fimm sem fundist hafa myrtar í nágrenni Ipswich í Bretlandi á síðustu dögum. Reyndist um 24 ára gamla vændiskonu að ræða, Paulu Clennel. Hún hafði í síðustu viku í viðtali við fréttamenn sagt að hún væri hrædd vegna þess hve margar vændiskonur hefðu horfið í rauða hverfi Ipswich nýverið, en neyddist þó til að halda áfram að vinna til að geta fjármagnað heróínfíkn sína.

Svo virðist sem hún hafi verið kyrkt, og líklegt þykir að morðingi hennar hafi einnig banað hinum konunum fjórum. Hinar látnu fundust allar naktar að frátöldum skartgripum og rannsakar lögregla nú klæðnað sem fundist hefur nærri þeim svæðum sem þær fundust á.

Lögregla segir líklegt að þær hafi allar verið myrtar í bíl og leitar nú að dökkbláum BMW-bíl.

Borgaryfirvöld í Ipswich hafa komið á fót heimkeyrsluþjónustu fyrir konur borgarinnar og hvetur konur til að vera aldrei einar á ferli á götum úti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×