Erlent

Segja Castro við dauðans dyr

MYND/AP

Fidel Castro, forseti Kúbu, er mjög veikur og við dauðans dyr. Þetta segir John Negroponte, yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, í viðtali við bandaríska blaðið Washington Post í dag.

Þar segir Negroponte enn fremur að upplýsingar leyniþjónustunnar bendi til þess að hann eigi aðeins nokkra mánuði eftir ólifaða. Castro, varð áttatíu ára í ár, hefur ekki komið fram opinberlega frá því í júlí þegar hann gekkst undir aðgerð vegna veikinda sinna en Raul bróðir hans hefur haldið um stjórnartaumana síðan þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×