Erlent

Meirihluti demókrata í hættu

Mike Rounds repúblikani Ríkisstjórinn í Suður-Dakóta fær það hlutverk að skipa eftirmann demókratans Tim Johnsons í öldungadeildinni, fari svo að hann látist eða verði ófær um að gegna þingmennsku.
Mike Rounds repúblikani Ríkisstjórinn í Suður-Dakóta fær það hlutverk að skipa eftirmann demókratans Tim Johnsons í öldungadeildinni, fari svo að hann látist eða verði ófær um að gegna þingmennsku. MYND/AP

Nýfenginn meirihluti demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings er hugsanlega í uppnámi eftir að Tim Johnson, demókrati og þingmaður í öldungadeildinni, var fluttur á sjúkrahús í gær og talinn í lífshættu.

Í fyrstu var talið að Johnson hefði fengið heilablóðfall, en hann gekkst síðar í gær undir heilaskurðaðgerð.

Fari svo að hann falli frá eða verði ófær um að gegna þingmennsku getur ríkisstjórinn í Suður-Dakóta, ríkisins sem Johnson er fulltrúi fyrir í öldungadeildinni, skipað eftirmann hans til bráðabirgða þar til næstu kosningar fara fram, sem er haustið 2008.

Þar sem ríkisstjórinn í Suður-Dakóta er repúblikaninn Mike Rounds þykir næsta öruggt að hann muni velja repúblikana til þess að gegna þingmennsku í öldungadeildinni í staðinn fyrir Johnson. Þar með væri meirihluti demókrata í deildinni fallinn.

Eftir þingkosningarnar í nóvember fengu demókratar 51 þingmann í öldungadeildinni en repúblikanar 49, en komi einn repúblikani í staðinn fyrir einn demókrata verða þingsæti beggja flokkanna jöfn, og þá kemur til kasta varaforseta Bandaríkjanna, Dicks Cheney, sem jafnframt er þingforseti öldungadeildar og hefur í krafti stöðu sinnar vald til að skera úr ef atkvæði falla jafnt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×