Færeyingur fær umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 5. október 2006 13:40 Bogi Hansen prófessor MYND/Jens Kr. Vang
Færeyingurinn Bogi Hansen, prófessor og rithöfundur, hlýtur Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2006. Verðlaunin eru nema um 4,2 milljónum króna og Hansen fær þau fyrir "afburða framlag til rannsókna á sviði loftslagsbreytinga", segir í tilkynningu. Þema verðlaunanna í ár var loftslagsbreytingar og aðlögun að loftslagsbreytingum. Rannsóknir Boga Hansen hafa fjallað um áhrif golfstraumsins og annarra hafstrauma á loftslagið. Í greinargerð dómnefndar segir: Bogi Hansen hlýtur verðlaunin fyrir umfangsmiklar rannsóknir sínar á loftslagi og haffræði á norðurhöfum. Sérstaklega er vísað til rannsókna hans til margra ára á hafstraumum og þeirri hættu sem kann að vera á því að golfstraumurinn, meðal annarra strauma gæti fært sig til. Jafnframt hefur honum tekist að miðla þekkingu á loftslagsbreytingum á skiljanlegan og einfaldan hátt jafnt til almennings, vísindamanna og stjórnmálamanna. Dómnefndin telur Boga Hansen vera verðugan fulltrúa norræna vísindasamfélagsins, starf hans hefur haft mikla þýðingu í alþjóðlegu samhengi, meðal annars sýndi hann snemma fram á áhrif loftslagsbreytinga á heimsskautssvæðinu. Rannsóknir hans hafa einnig sýnt fram á að hlýnun jarðar hefur áhrif á vistkerfið við Færeyjar og þar með einnig á efnahag Færeyja. Bogi Hansen hefur tekið þátt í fjölda norrænna og alþjóðlegra rannsóknaverkefna og er nú formaður Vestnorræna verkefnisins á sviði haf- og loftslagsmála, en verkefnið hefur haft áhrif á loftslags og fiskirannsóknir. Vísindastarf hans hefur verið umfangsmikið og margar greina hans hafa birst í Nature and Science. Hann er meðhöfundur fjölda vísindabóka og einnig bóka fyrir almenning um efnið, meðal annars fékk hann færeysku bókmenntaverðlaunin árið 2001 fyrir bók sína Hafið. Verðlaunin verða veitt í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn, miðvikudaginn 1. nóvember 2006.
Mest lesið Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Innlent Ofbeldi í garð fangavarða eykst Innlent Dettifoss komið til hafnar Innlent Þinglokasamningur í höfn Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Fleiri fréttir Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Sjá meira