Erlent

Al Kaída segir kosningar í Palestínu misráðnar

Merki al-Jazeera sjónvarpsstöðvarinnar.
Merki al-Jazeera sjónvarpsstöðvarinnar.

Ayman al-Zawahri, næstráðandi í Al Kaída, segir lýðræðislegar kosningar ekki réttu leiðina til að frelsa palestínsku sjálfsstjórnarsvæðin eða berjast gegn Ísrael. Þetta segir hann í myndbandsupptöku frá hryðjuverkasamtökunum sem sýnd var á arabísku sjónvarpsstöðinni Al Jazeera í morgun, þeirri fyrstu frá Al Kaída í tæpa þrjá mánuði.

Þá segir hann að kosningarnar muni skaða hið heilaga stríð gegn ísraelska hernáminu. "Þeir sem reyna að frelsa múslimskt land með kosningum sem eru byggðar á trúarlegum grunni ... munu ekki frelsa eitt einasta palestínskt sandkorn, heldur kæfa hið heilaga stríð," segir al-Zawahri.

Þetta eru fyrstu myndbandsskilaboð sem sýnd eru frá hryðjuverkasamtökunum síðan í septemberlok. Í því myndbandi kallaði Zawahri Bandaríkjaforseta misheppnaðan lygalaup, eftir að sá síðarnefndi sagðist vera að ná árangri í stríðinu við hryðjuverk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×