Átök á milli Hamas og Fatah á heimastjórnarsvæðum í morgun 15. desember 2006 12:45 Liðsmaður í Fatah-hreyfingunni skýtur af byssu sinni á Hamas-liða í Ramallah á Vesturbakkanum í morgun. MYND/AP
Liðsmenn Hamas saka Fatah-hreyfinguna um að hafa sýnt Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, banatilræði við landamærin að Gaza í gærkvöld. Til átaka kom á milli liðsmanna Hamas og Fatah á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna í morgun. Haniyeh var að koma frá Egyptalandi með um tvo milljarða íslenskra króna í farteskinu sem hann hafði safnað á ferðalagi sínu. Ísraelar lokuðu fyrst landamærunum og fengust ekki til að opna þau aftur nema að Haniyeh skildi peningana eftir í Egyptalandi. Þegar hann var svo kominn yfir til Gaza tók ekki betra við. Heiftarlegur skotbardagi braust út á milli lífvarða Haniyeh og vopnaðra manna, tengdum Fatah-hreyfingu Mahmoud Abbas forseta. Einn lífvarðanna beið bana og fimm særðust, þar á meðal sonur forsætisráðherrans. Haniyeh og menn hans komust undan í bíl við ramman leik. Í yfirlýsingu frá Hamas í morgun er fullyrt að um morðtilraun hafi verið að ræða sem Mohammad Dahlan, fyrrverandi innanríkisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, hefði skipulagt. Grunnt hefur verið á því góða með fylkingununum að undanförnu, sérstaklega eftir að þrír synir háttsetts Fatah-liða voru myrtir í byrjun vikunnar. Búist er við að ólgan á herteknu svæðunum muni aukast enn frekar vegna árásarinnar og ásakana Hamas. Raunar sáust merki um það strax í morgun því þá kom til byssubardaga á milli liðsmanna Hamas og Fatah, bæði á Vesturbakkanum og Gaza.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Hnífjafnt í síðustu könnuninni Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira