Haniyeh kominn aftur til Gaza 14. desember 2006 20:31 Haniyeh er annar frá vinstri. Myndin er frá heimsókn hans til Egyptalands í dag. MYND/AP
Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu, er nú kominn yfir Rafha-landamærin og aftur inn á Gaza-svæðið eftir heimsókn til Egyptalands. Hann fékk ekki að hafa heim með sér gífurlegar fjárhæðir frá helstu bakhjörlum Palestínumanna en takmark ferðalagsins var að ná í fjárstuðning til Palestínumanna. Ísraelsmenn lokuðu landamærunum á milli Gaza-strandarinnar og Egyptalands í dag þegar Haniyeh ætlaði að fara heim á ný. Hann er sagður hafa haft í fórum sínum allt að tvo milljarða íslenskra króna styrk frá Egyptum og öðrum vinveittum þjóðum sem nota átti til að greiða laun og önnur gjöld sem hafa verið ógreidd vegna þess að skorið hefur verið á fjárstuðning við heimastjórn Palestínumanna frá því Hamas-samtökin náðu völdum. Eftirlitsmenn á vegum Evrópusambandsins annast rekstur Rafha landamærastöðvarinnar á landamærum Gaza og Egyptalands. Amir Peretz, varnarmálaráðherra Ísraela, mun hafa skipað þeim að loka henni. Eftirlitsmennirnir þurfa að fara í gegnum Ísrael til að koma að landamærastöðinni. Ísraelar vilja ekki sjá að peningarnir, sem eru að mestu sagðir koma frá Írönum, komist yfir landamæri. Þeir verði notaðir til að fjármagna hryðjuverk. Herskáir Hamas-liðar brugðust ókvæða við þessari lokun, réðust á landamærastöðina og tóku þar völdin af vörðum. Engan mun hafa sakað. Eftir það áhlaup virðist sem Hamas liðar hafi ákveðið að Haniyeh færi heim án peninganna sem sendifulltrúar á hans vegum kæmu með síðar.Haniyeh stytti ferðalag sitt og sneri heim í dag þar sem spennan á Gaza svæðinu hefur magnast síðustu daga, eða frá því að þrír ungir synir Fatah-liða í öryggissveitum Palestínumanna voru myrtir fyrir utan skóla sinn.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Hnífjafnt í síðustu könnuninni Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira