Leitar logandi ljósi að raðmorðingja 13. desember 2006 12:15
Breska lögreglan leitar nú logandi ljósi að raðmorðingja sem hefur myrt fimm vændiskonur nærri Ipswich á Englandi. Óttast er að ódæðismaðurinn fremji annað morð áður en lögregla hefur hendur í hári hans. Lögreglumenn eru í kapphlaupi við tímann þar sem þeir fínkemba landsvæði nærri A 14 hraðbrautinni við Ipswich í Austur-Anglíu. Nakið lík Gemmu Adams, sem var tuttugu og fimm ára, fannst í tjörn nærri hraðbrautinni 2. desember síðastliðinn. Lík Taníu Nicol, sem var nítján ára, fannst síðastliðinn föstudag í tjörn skammt frá og á sunnudaginn fannst Anneli Alderton myrt á engi í næsta nágrenni. Lík Annettte Nicholls og Paulu Clennell fundust síðan í gær eftir að vegfarandi gekk fram á þau nærri þeim stað þar sem hinum þremur fórnarlömbum ódæðismannsins hafði verið komið fyrir. Allar fimm voru þær vændiskonur. Sky-fréttastofan greinir frá því að vændiskonur í næsta nágrenni hafi farið að ráðum lögreglu og haldið sig heima liðna nótt. Það eru þó ekki aðeins vændiskonur í Ipswich og næsta nágrenni sem óttast um líf sitt. Íbúar eru óttaslegnir og varir um sig. Morðin hafa vakið óþægilegar minningar um raðmorð sem framin voru í Yorkshire á Englandi á áttunda áratug síðustu aldar. Peter Sutcliffe játaði þá á sig morð á þrettán konum og voru flest fórnarlömbin vændiskonur. Alastair McWhirter, yfirlögregluþjónn í Suffolk, segir muninn nú að svo mörg morð hafi verið framið á svona stuttum tíma. Morðin í Yorkshire hafi verið framin á lengri tíma. Lögregla segist ekki útiloka neitt í rannsókn sinni sem stendur. Heimildir breskra miðla herma að jafnvel sé talið að fleiri en einn ódæðismaður séu að verki í sameiningu. Talsmaður rannsóknarteymisins segir margt benda til þess að konurnar hafi þekkt morðingja sinn sem hafi verið fastakúnni hjá þeim. Því gæti verið að vændiskonur í Ipswich og næsta nágrenni þekki ódæðismanninn eða -mennina.
Mest lesið Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Fleiri fréttir Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Sjá meira