Bush afléttir leyndinni 27. september 2006 11:53
Bush Bandaríkjaforseti hefur aflétt leynd af skýrslu leyniþjónustunnar um alþjóðlega hryðjuverkastarfsemi en niðurstaða hennar er að íslamskir öfgahópar hafi eflst vegna Íraksstríðsins. Þrátt fyrir þetta segir hann þá sem gagnrýna stríðsreksturinn hegða sér barnalega. Skýrslan um stöðu og horfur í hryðjuverkastarfsemi heimsins er runnin undan rifjum sextán leyniþjónustustofnana Bandaríkjanna en hluta hennar var lekið til dagblaðsins New York Times um helgina. Óhætt er að segja að niðurstöður hennar séu sláandi: Íraksstríðið hefur orðið vatn á myllu herskárra íslamista um heim allan og vargöldin í landinu hefur orðið til þess að þangað flykkjast öfgamenn alls staðar að úr heiminum. Átökin hafa auk þess orðið til að auka enn á andstöðu múslima við Bandaríkin og allt bendir til að hryðjuverkahópum fari fjölgandi og Bandaríkjunum stafi sífellt meiri hætta af þeim. Tvenns konar ályktanir eru dregnar af þessari dökku mynd sem leyniþjónustan dregur upp. Þeir sem gagnrýnt hafa hernaðinn í Írak segja að skýrslan sýni hvílík reginmistök innrásin hafi verið. Stuðningsmenn Íraksstríðsins segja aftur á móti að takist hernum að vinna bug á öfgamönnum í Írak sé stórum áfanga í stríðinu gegn hryðjuverkum náð og því megi þar hvergi hvika í baráttunni. Í gærkvöld tilkynnti Bush Bandaríkjaforseti að leynd af hlutum skýrslunnar hefði verið aflétt til að almenningur gæti sjálfur metið efni hennar. Við það tækifæri gagnrýndi forsetinn lekann til fjölmiðla sem hann sagði til að hafa áhrif á úrslit þingkosninganna í nóvember en auk þess kallaði hann gagnrýnendur Íraksstríðsins barnalega. Demókratar hafa þegar krafist þess að skýrslan verði birt í heild sinni.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Innlent Fleiri fréttir Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Sjá meira