Ísraelar hætta að sprengja í Líbanon á mánudag 12. ágúst 2006 19:17
Ísraelar segjast ætla að hætta hernaðaraðgerðum í Líbanon á mánudag. Þeir sækja nú fram með mikinn liðsafla að Litani-ánni, sem skilur að norður- og suðurhluta landsins, þrátt fyrir ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi um vopnahlé. Að minnsta kosti tuttugu Líbanar létu lífið í árásum Ísraela í dag og sjö ísraelskir hermenn féllu í átökum við Hizbolla-skæruliða. Leiðtogi Hizbolla tilkynnti í dag að skæruliðasamtökin muni virða ályktunina og hætta hernaðaraðgerðum. Í ályktun Öryggisráðsins er kveðið á um að fullt og algjört vopnahlé skuli virt af báðum aðilum. Þá er áætlað að 15 þúsund friðargæsluliðar verði sendir til Líbanons þegar friði hefur verið komið á og að Ísraelar dragi landher sinn að fullu út úr Líbanon. Leiðtogi skæruliða Hizbollah, Hassan Nasrallah, lýsti því yfir í sjónvarpi að Hizbollah muni virða ályktun Öryggisráðsins um að leggja niður vopn. Hins vegar tekur hann einnig fram að Hisbollah muni halda áfram árásum sínum svo lengi sem ísraelskir hermenn eru í Líbanon. Ísraelar hafa þrefaldað herlið sitt í Líbanon og var tilkynnt í ísraelsku útvarpi í dag að einhverjir hermannanna hafi þegar náð Litani-ánni sem Ísraelar hafa tilkynnt sem ásættanleg mörk öryggissvæðis síns. Heryfirvöld hafa ekki viljað staðfesta fjölda hermanna sem nú eru í Líbanon en samkvæmt heimildum BBC munu þeir vera um 30 þúsund. Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, tilkynnti nú rétt fyrir fréttir að herferð Ísraela gegn Hisbollah muni líklega ljúka á mánudaginn. Hún sagði að heryfirvöld í Ísrael hefðu beðið um aukatíma til að ganga almennilega frá ætlunarverki sínu og sagði að herinn myndi fá þann tíma sem til þyrfti, sem væri líklega ekki lengur en fram á mánudag.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira