Erlent

Sómalar mótmæla veru Eþíópíumanna

MYND/AP

Yfir 5000 manns söfnuðust saman í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu í dag til að mótmæla veru eþíópísks herliðs í landinu.

Mótmælendurnir fylltu íþróttaleikvang í norðurhluta Mogadishu, brenndu eþíópíska fánann og sungu: "Við viljum ekki Eþíópíumenn. Eþíópía er forn óvinur." Hinir kristnu Eþíópíumenn og múslimarnir í Sómalíu hafa enda oft eldað grátt silfur saman. Mótmælin voru skipulögð af íslömskum andspyrnuhópi sem hefur haft Mogadishu á valdi sínu.

Eþíópískir hermenn fóru inn í Sómalíu fyrir fjórum dögum síðan til að styðja við bakið á valdalausri ríkisstjórn Sómalíu. Þetta segja talsmenn íslamska andspyrnuhópsins en eþíópíska ríkisstjórnin neitar enn að viðurkenna að eþíópískt herlið sé í Sómalíu.

Opinber ríkisstjórn hefur ekki haft nein völd í Sómalíu síðustu fimmtán árin síðan einræðisherranum Barre var steypt af stóli og stríðsherrar í landinu snerust hver gegn öðrum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×