Hungur er hlutskipti 146 milljóna barna 2. maí 2006 21:15
Heimsbyggðin hefur brugðist börnum jarðar með því að tryggja þeim ekki nægan mat, segir í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. 146 milljónir barna um víða veröld búa við sult og seyru. Myndin sem dregin er upp í þessari nýju skýrslu Unicef er dökk því þar kemur fram að ríflega fjórðungur allra barna undir fimm ára aldri í þróunarlöndunum þjáist af vannæringu. Þau eru 146 milljónir eða hér um bil jafnmörg og íbúar Rússlands. Í svonefndum þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna er stefnt að því að útrýma sárri fátækt og hungri í heiminum fyrir árið 2015 en þegar litið er til þess að árið 1990 liðu 32 prósent barna skort er ljóst að enn er langt í land. Ástandið er verst í sunnanverðri Asíu, til dæmis er talið er að annað hvert barn á Indlandi sé vel undir kjörþyngd. Í Austur-Asíu og Eyjaálfu er staðan líka slæm og sem fyrr er hagur afrískra barna bágborinn. Þessu komst Kjell Magne Bondevik, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs og erindreki Sameinuðu þjóðanna að á ferð sinni um Sómalíu og fleiri lönd um helgina en þar hafa miklir þurrkar valdið ítrekuðum uppskerubresti. Íbúar svæðsins verða sumir hverjir að ganga tugi kílómetra til að komast í vatn og sulturinn er óhjákvæmilegur hluti lífsins. Til að gera illt verra ríkir algert upplausnarástand í Sómalíu og ríkisstjórn landsins ræður aðeins yfir litlum hluta þess. Því er dreifing hjálpargagna erfiðleikum bundin og átján milljónir Sómala líða þannig skort.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Fleiri fréttir „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Sjá meira