Skatan í útrýmingarhættu 2. maí 2006 19:30
Íslenska skatan er í mikilli hættu á að deyja út, samkvæmt nýjum válista umhverfisverndarsamtakanna, World Conservation Union. Sextán þúsund dýra- og plöntutegundir er að finna á listanum, þar á meðal hvítabirni og flóðhesta í fyrsta sinn.World Conservation Union birta á hverju ári lista yfir tegundir sem eru í útrýmingarhættu, mismikilli þó. 16.119 tegundir njóta þessa vafasama heiðurs og hefur þeim fjölgað lítillega frá síðasta ári. Að mati samtakanna er samt augljóst mynstur í gangi: fjölbreytni í dýra- og plöntulífi er á undanhaldi þrátt fyrir aðgerðir alþjóðasamfélagsins. Hvítabirni er nú í fyrsta sinn sagðir "í hættu" og er ástæðan ekki ofveiði heldur hlýnun jarðar. Bráðnun íshellunnar á Norðurskautinu þýðir að mjög hefur saxast á búsvæði sjálfra bjarnanna og dýranna sem þeir veiða sér til matar. Flóðhestar rata sömuleiðis inn á listann í fyrsta sinn, aðallega vegna hruns stofnsins í Kongó þar sem veiðiþjófar hafa í skjóli stríðsátaka drepið skepnurnar unnvörpum.Það er hins vegar ekki bara í fjarlægum löndum þar sem sótt er að dýrunum. Hákarlastofnar hafa látið mjög á sjá og skatan sem Íslendingar háma í sig á Þorláksmessu er í mikilli útrýmingarhættu.Sem betur fer ekki eintómur bölmóður í skýrslunni. Vegna verndaraðgerða hefur haförninn verið færður úr flokki dýra í hættu í flokk dýra sem litlar áhyggjur þarf að hafa af.
Erlent Fréttir Mest lesið Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Fleiri fréttir Seinfeld og Friends-leikari látinn Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Sjá meira