Erlent

Óeirðir í Þýskalandi

MYND/AP

Óeirðir brutust út í Þýskalandi í gær eftir 1. maí hátíðarhöld í landinu. Í Kreuzberg í nágrenni Berlínar þar sem fjöldi innflytjenda er hópaðist fjöldi ungmenna út á götur og var með ólæti. Lögreglan reyndi að hafa stjórn á fólkinu en við það æstist leikurinn og var ýmsu lauslegu kastað í lögreglumennina. Óeirðarlögregla var kölluð til til þess að ná stjórn á mannskapnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×