Erlent

Ólga í indverska Kasmír

Auk þeirra sem voru myrtir særðust margir í árásum vígamannanna.
Auk þeirra sem voru myrtir særðust margir í árásum vígamannanna. MYND/AP

Íslamskir öfgamenn hafa undanfarinn sólarhring banað 35 hindúum í indverska hluta Kasmír. Verstu ódæðin voru unnin í tveimur afskekktum fjallaþorpum í héraðinu en þar voru 22 karlmenn teknir út úr húsum sínum og skotnir til bana. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á morðunum en talið er fullvíst að með þeim eigi að spilla fyrir fyrirhuguðum samningaviðræðum Manmohan Singh, forsætisráðherra Indlands og fulltrúa aðskilnaðarsinna, sem fram eiga að fara á miðvikudaginn. Vopnahlé hefur verið í gildi á svæðinu síðan 2003 en ólga hefur farið vaxandi þar að undanförnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×