Erlent

Vilja framlengja neyðarlög gegn hryðjuverkum

Frá minningarathöfn í Dahab í vikunni.
Frá minningarathöfn í Dahab í vikunni. Mynd/AP

Egypska lögreglan skaut mann til bana og handsamaði fjóra aðra snemma í morgun í aðgerðum vegna hryðjuverkanna í Dahab. Ríkisstjórn landsins hefur krafist þess að neyðarlög vegna hryðjuverka verði framlengd.

Lögregla lét til skarar skríða í morgun við hýbýli manna sem taldir eru tengjast árásunum. Eftir tveggja tíma skotbardaga hafði lögreglu tekist að handsama fjóra menn, auk þess sem einn féll í valinn. Nokkrir aðrir náðu að flýja af vettvangi. Talið er að mennirnir tilheyri hópi sem tók þátt í að skipuleggja sprengjuárás á ferðamannastaðinn Dahab á mánudaginn, þar sem átján ferðamenn létust. Jafnvel er talið að þeir tengist tveimur öðrum mannskæðum spengjuárásum við Sinaískaga.

Egypska ríkisstjórnin fór í dag fram á að þing landsins framlengi neyðarlög sem leyfa handtökur og yfirheyrslur yfir meintum hryðjuverkamönnum án þess að þeir séu ákærðir. Slík lög hafa verið í gildi síðan 1981, þegar þáverandi forseti, Anwar Sadat var ráðinn af dögum. Nú eru í bígerð ný lög, sem enn hafa þó ekki tekið gildi. Ríkisstjórnin vill að neyðarlögin verði framlengd um tvö ár, eða þangað til nýju lögin ganga í gegn. Árásirnar þrjár á undanförnu einu og hálfu ári síni að full þörf sé á að geta yfirheyrt meinta hryðjuverkamenn án ákæru.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×