Samráð Bandaríkjanna, Ísraela og Breta 15. mars 2006 12:04 MYND/AP
Framkvæmdastjóri Arababandalagsins, segir Bandaríkjamenn og Breta bera ábyrgð á árás Ísraelsmanna á fangelsi Palestínumanna í Jeríkó og þeim átökum sem urðu í kjölfarið. Hann segir ljóst að einhverskonar samráð hafi átt sér stað milli þeirra og Ísraela. Palestínumennirnir sex sem gáfust upp fyrir ísraelska hernum eftir daglangt umsátur um fangelsið sem þeir sátu í verða kvaddir fyrir ísraelskan dómstól og látnir svara til saka fyrir morð á ferðamálaráðherra Ísraels, Rehavam Zeevi, árið 2001. Frá þessu greindi ísraelskur embættismaður í gærkvöld. Ísraelsmenn réðust á fangelsið til að handsama Ahmed Saadat, leiðtoga Alþýðufylkingarinnar til frelsunar Palestínu, og fimm menn aðra sem sakaðir eru um morðið sem átti sér stað fyrir fimm árum. Bretar og Bandaríkjamenn hafa haft eftirlit með fangelsinu samkvæmt sérstöku samkomulagi við heimastjórn Palestínumanna en eftirlitsmenn þeirra voru farnir þegar Ísraelsmenn réðust á fangelsið. Amr Moussa, framkvæmdastjóri Arababandalagsins hvetur alþjóðasamfélagið til að fordæma árásina á fangelsið. Mikil reiði greip um sig meðal Palestínumanna eftir árásina á fangelsið. Þúsundir manna gengu um götur og hrópuðu slagorð gegn Ísrael og var kveikt í bústað bresku sendinefndarinnar á Gaza. Þá voru að minnsta kosti tíu útlendingar teknir gíslingu á Vesturbakkanum, en nokkrum þeirra hefur þó verið sleppt. Enn er þó í haldi bandarískur háskólaprófessor og segja uppreisnarmennirnir hann verða drepinn, verði Ahmed Saadat og fylgismönnum hans gert mein.
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Nánast búin með stafrófið Innlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Fleiri fréttir Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Sjá meira