Erlent

Ósamkomulag innan Öryggisráðs SÞ

MYND/AP

Fulltrúar þeirra ríkja í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna sem hafa þar neitunarvald, Kína, Frakklands, Rússlands, Bandaríkjanna og Bretlands, hittust í gær til að ræða stöðu Írans. Engin niðustaða fékkst að þessu sinni en á meðan Kínverjar og Frakkar vilja ekki beita refsiaðgerðum vilja Frakkar, Bretar og Bandaríkjamenn það ólmir. Sendiherra Bandaríkjanna hjá ráðinu, John Bolton sagði ríkisstjórn Bush vilja bregðast fljótt og örugglega við og hafa sagt útilokað að Íranar fái að framleiða úran. Láti þeir verða af því geti vel verið að Bandaríkjamenn ráðist á landið. Bolton sagði þó betra að hafa Öryggisráðið með, komi til þess.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×