Bandaríkjaforseti aldrei óvinsælli 14. mars 2006 13:46
Bandaríkjaforseti hefur aldrei verið jafn óvinsæll og nú og fjölgar þeim stöðugt sem krefjast þess að bandaríski herinn verði kvaddur heim frá Írak hið fyrsta. Bush segir ástandið í Írak sífellt fara batnandi og biður landa sína um að sýna stillingu. Bush fullyrti í gær að þótt ástandið í Írak sé spennuþrungið, væri hættan á borgarastyrjöld lítil. Forsetinn hvatti landa sína og Íraka til að vera þolinmóða, á meðan verið væri að ná sátt um nýja stjórn í landinu. Sprengjutilræði í mosku sjía í Írak 22. febrúar leiddi til þess að hátt í þúsund manns hafa fallið í hefndaraðgerðum. Óttast margir að borgarastyrjöld brjótist út á milli Sjía og Súnníta en Bush segist sannfærður um að svo fari ekki. Hlutfall þeirra Bandaríkjamanna sem eru óánægðir með frammistöðu Bush hefur aldrei verið hærra en nú. Margir krefjast þess að bandaríski herinn verði kvaddur heim frá Írak hið fyrsta en samkvæmt mánaðarlegri skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir CNN og USAToday er aðeins rúmlega þriðjungur Bandaríkjamanna eða 36 prósent sáttur við störf Bush sem er tveimur prósentustigum minna en í síðasta mánuði. Þá ætlar ríflega helmingur aðspurðra eða 55%, að kjósa demókrata í þingkosningunum í haust en aðeins 39% repúblíkana. Hersveitir Bandaríkjamanna og Breta í Írak kunna á næstu vikum að fela heimamönnum yfirstjórn öryggismála í nokkrum héruðum landsins. Þetta sagði varnarmálaráðherra Bretlands í dag. Þá sagði hann að til stæði að fækka í herliði Breta í Írak um 800 manns. Ekkert lát virðist ætla að vera á átökum í Írak en lögreglan í Bagadad hefur fundið lík 40 manna sem höfðu verið skotnir í hinum ýmsu borgarhlutum á síðastliðnum sólarhring, þar á meðal lík fjögurra manna sem höfðu verið hengd á háspennumastur í Sadr borg. Þar féllu um 60 manns í sprengingum á sunnudag.
Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Innlent Fleiri fréttir Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Sjá meira