Erlent

Bankaræningi í 19 ára fangelsi

David Toska (til hægri) and Kjell Alrich Schouman voru báðir sakfelldir í dag fyrir aðild að ráninu.
David Toska (til hægri) and Kjell Alrich Schouman voru báðir sakfelldir í dag fyrir aðild að ráninu. MYND/AP

David Alexander Toska, höfuðpaurinn að baki bankaráninu í Stavangri í Noregi fyrir tveimur árum, var í hádeginu í dag dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir þátt sinn í því.

Toska hefur viðurkennt aðild sína að ráninu þar sem lögreglumaður var skotinn til bana. Sækjendur fór fram á að maðurinn yrði dæmdur í 21 árs fangelsi í hámarks öryggisgæslu.

12 aðrir voru einnig dæmdir í málinu í dag og voru þeir dæmdir í allt að 17 ára fangelsi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×