Erlent

Keops er víst í eigu Íslendinga

MYND/AP

Danska fasteignafyrirtækið Keops hefur keypt umferðarmiðstöðina í Helsingjaborg í Svíþjóð fyrir hátt í fjóra milljarða íslenskra króna. Greint er frá þessu á viðskiptasíðu Jótlandspóstsins og segir þar í undirfyrirsögn, með nokkru stolti, að það séu ekki bara íslendingar, sem fjárfesti í útlöndum.

Jótlandspóstinum hefur hinsvegar yfirsést að íslenska fyrirtækið Baugur á hvorki meira né minna en þriðjung í Keops og þar með í umferðarmisðtöðinni, sem er ótvírætt kennileiti í miðborg Helsingjaborgar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×