Íbúar úthverfanna afhenda þingmönnum umkvartanir 25. október 2006 12:30
Undirskriftir tuga þúsunda óánægðra íbúa í úthverfum Parísar og víðar í Frakklandi verða afhentar þingmönnum í dag. Hópur sem kallar sig AC le Feu hefur síðan á síðasta ári ferðast um Frakkland og safnað undirskriftum og umkvörtunum íbúa úthverfanna sem finnast þeir afskiptir af frönskum stjórnmálamönnum og þjóðfélagi. Þessar undirskriftir ætla þeir að afhenda í þinghúsinu í dag.Í skýrslu Upplýsingaþjónustu frönsku lögreglunnar sem dagblaðið Le Figaro komst yfir í gær segir að ástandið í úthverfunum sé enn mjög eldfimt þar sem atvinnuleysi meðal ungs fólks sé víða svimandi hátt. Þar er hátt hlutfall innflytjenda og mörgum þeirra finnst þeir afskiptir í frönsku samfélagi og af frönskum stjórnmálamönnum. Í skýrslunni segir að þeir þættir sem valdi óánægju fólksins hafi lítið breyst síðan á síðasta ári og því olían enn til staðar til að eldurinn blossi upp á ný.Skýrslan varar einnig við því að ekki þurfi mikið til að reiði beinist gegn lögreglunni og því reyna lögreglumenn að láta lítið fyrir sér fara, þó franska lögreglan sé við öllu búin, nú þegar eitt ár er liðið frá óeirðum í úthverfunum. Úthverfabúar kvarta einnig yfir því áreiti frá lögregluþjónum sem leggi ungt fólk í einelti ef þeir líkist staðalímyndum þeirra sem taldir eru vandræðagemsar.Atvinnumálaráðherra Frakklands sagði á dögunum að áframhaldandi óánægja meðal ungs fólks í úthverfunum orsakaðist af djúpstæðu vandamáli á franska atvinnumarkaðnum. "Þetta eru mistök síðustu fjörutíu ára sem þarf að laga. Við þurfum fimm ára áætlun. Fimm ár til að endurmennta unga fólkið, þjálfa það og hjálpa hverjum og einum að finna sér starf. Þetta er margþætt áætlun en fólk má ekki telja sér trú um að hægt sé að að leysa þetta á tveimur árum, það þarf þrjú, fjögur eða fimm ár til að láta þetta virka."
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira