Refsiaðgerðir boðaðar 24. mars 2006 19:45
Úrslit forsetakosninganna í Hvíta-Rússlandi á sunnudaginn hafa vægast sagt valdið ólgu en stjórnarandstaðan í landinu og erlendir kosningaeftirlitsmenn telja fullvíst að Alexander Lúkasjenkó, sitjandi forseti, hafi þar haft rangt við. Síðan um helgina hafa mótmælendur hafst við á Október-torginu í höfuðborginni Minsk en slíkar samkomur hafa hingað til verið bannaðar með öllu. Þessi vermir reyndist hins vegar skammgóður því í nótt leysti öryggislögreglan KGB upp mótmælin og tók forsprakka þeirra fasta. Eins og nærri má geta vakti gjörningurinn litla lukku í röðum stjórnarandstæðinga. Ólgan í Hvíta-Rússlandi teygir sig út fyrir landsteinana því í dag lét Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands þá skoðun sína í ljós að Öryggissamvinnustofnun Evrópu ÖSE hefði hellt olíu á eldinn með því að lýsa því yfir að kosningarnar væru ólöglegar áður en þær voru haldnar. Hinum megin Atlantshafsins sagði Scott McClellan talsmaður Hvíta hússins að refsiaðgerðir væru í bígerð gegn stjórnvöldum í Minsk og í Brussel samþykkti leiðtogaráð Evrópusambandsins ályktun um svipað efni. Í bili verður látið nægja að neita hvítrússneskum embættismönnum um vegabréfsáritanir til Evrópu og Bandaríkjanna. Hvort Lúkasjenkó og félagar hans láti segjast við þetta á eftir að koma í ljós.
Erlent Fréttir Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Fleiri fréttir Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Sjá meira