Erlent

Milosevic hugsanlega jarðsettur í Serbíu

Boris Tadic, forseti Serbíu.
Boris Tadic, forseti Serbíu. MYND/AP

Forseti Serbíu útilokar ekki að Slobondan Milosevic verði jarðaður í Serbíu. Boris Tadic sagði í viðtali við fréttastofu breska ríkissjónvarpsins BBC í kvöld að það væri alfarið undir fjölskyldu Milosvic komið hvar hann yrði jarðaður.

Fyrr í dag sagði Tadic það fullkomlega óviðeigandi að Milosevic yrði borinn til grafar í Serbíu, en nú virðist hann hafa skipt um skoðun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×