Erlent

Dánarorsok Milosevic líklega hjartaáfall

MYND/AP

Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, lést úr hjartaáfalli samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum krufningar. Krufningin var gerð af hollenskum réttarlæknum að tveimur serbneskum réttarlæknum viðstöddum. Saksóknarar segja að eiturefnafræðileg rannsókn verði samt sem áður gerð þótt dánarorsökin liggi fyrir. Bosníu Serbar hafa lýst yfir efasemdum um dauða Milosevic og telja að eitrað hafi verið fyrir honum. Milosevic var ákærður fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu í átökunum á Balkanskaga, meðal annars fyrir morð á átta þúsund múslímum í Srebrenica í Bosníu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×