Rússar draga krufninguna í efa 13. mars 2006 19:00
Eiturefnafræðingur segist hafa fundið lyf í líkama Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, sem hafi óbeint valdið hjartaáfallinu sem dró hann til dauða á laugardagsmorgun. Rússnesk stjórnvöld efast um hlutleysi þeirra sem skera úr um dánarorsök forsetans fyrrverandi. Flest bendir til að Slobodan Milosevic hafi látist úr hjartaáfalli en rannsókn á hvað olli því stendur ennþá yfir. Í dag greindi David Uges, eiturefnafræðingur sem rannsakaði lík Milosevic, frá því að hann hefði fundið leifar sýklalyfsins rífampisíns í líkama hans og verulegar líkur væru á að það hefði unnið gegn áhrifum hjartalyfja sem læknar stríðsglæpadómstólsins í Haag gáfu honum. Uges kvað líklegast að Milosevic hefði sjálfur tekið lyfið til að sýna fram á að meðferðin í Hollandi væri gagnslaus svo senda mætti hann til Rússlands. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sagðist í dag hafa fengið bréf frá forsetanum fyrrverandi þar sem hann lýsti áhyggjum sínum af hrakandi heilsu sinni. Þar sem stríðsglæpadómstóllinn í Haag treysti Rússum ekki til að meðhöndla Milosevic sagðist Lavrov áskilja sér allan rétt til að draga niðurstöður krufningarinnar á honum í efa. Marko, sonur Milosevic mun á morgun taka við líki föður síns en ekki hefur verið ákveðið hvar það verður grafið. Líklegast er þó talið að útförin fari fram í Belgrað.
Erlent Fréttir Mest lesið Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Innlent Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Erlent Slösuð göngukona flutt með þyrlunni Innlent Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Innlent Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Sjá meira