Erlent

Íransstjórn ræðir málefni Íraks

Íransstjórn hefur fallist á beiðni Bandaríkjastjórnar um viðræður um ástand mála í Írak. Yfirmaður Þjóðaröryggisráðs Írans, segir að tilboði um viðræður hafi verið tekið eftir að Aziz al-Hakim, leiðtogi shita í Írak, skoraði á Íransstjórn að hefja viðræður við stjórnvöld í Washington á ný. Engin dagsetning er komin en viðræðunefnd verður skipuð á næstunni. Bréf Bandaríkjamanna hefur verið birt í fjölmiðlum í Íran þar sem fram kemur að menn hafi áhyggjur af meintum tengslum Írana við herskáa hópa í Írak.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×