Reiðibál í löndum múslima 10. febrúar 2006 22:07 Ólæti í Palestínu.
Fundur leiðtoga íslamskra ríkja í hinni helgu borg Mekka í desember síðastliðnum virðist hafa verið sá frjói jarðvegur sem Múhameðsmyndunum umdeildu var sáð í. Þaðan dreifðust þær um öll Mið-Austurlönd og kveiktu það reiðibál sem nú logar í löndum múslima. Enn einn daginn mótmæltu múslimar í öllum heimshornum Múhameðsmyndunum umdeildu. Palestínumenn á Gaza-ströndinni brenndu danska fánann venju samkvæmt og á Indlandi var efnt til svipaðra uppákoma. Í Kúala Lúmpúr, höfuðborg Malasíu, einu fjölmennasta múslimaríki heims, var boðað til stórrar kröfugöngu og við það tækifæri flutti forsætisráðherra landsins sannkallaða þrumuræðu. Sagði hann allt í senn krossferðirnar, vestræna heimsvaldastefnu og Ísraelsríki hafa leitt til togstreitunnar sem sé á milli Vesturlanda og Íslams. Ekkert lát virðist þannig á þessari dæmalausu reiðiöldu sem virðist farin að snúast um annað og meira en skopmyndir Jótlandspóstsins. Nú eru að verða fimm mánuðir síðan myndirnar birtust fyrst en til að byrja með var gremja múslima að mestu bundin við Danmörku. Síðla októbermánaðar neitaði Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, að hitta sendiherra nokkurra múslimaríkja þar sem prentfrelsi ríkti í landinu og deilan því ekki mál ríkisstjórnarinnar. 7 desember síðastliðinn virðast hins vegar vatnaskil hafa orðið í deilunni þegar leiðtogar íslamskra ríkja hittust á fundi í Mekka í Sádi-Arabíu. Utanríkisráðherra Egyptalands mætti til fundarins með myndirnar umdeildu, auk þriggja mynda sem danskir múslimar bættu í bunkann, að því er virðist til að kynda enn undir ólguna. Þaðan dreifðust myndirnar svo um öll Mið-Austurlönd. Fyrir tveimur vikum hvöttu yfirvöld í Sádi-Arabíu til að danskar vörur yrðu sniðgengnar og þremur dögum síðar hófust mótmælin fyrir alvöru á Gaza. Þar með var flóðbylgju mótmæla hrundið af stað sem ekki sér enn fyrir endann á.
Erlent Fréttir Múhameðsteikningar Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Fleiri fréttir Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Sjá meira