Kvikmyndaframleiðendur keppa um íslenskar krimmasögur 30. nóvember 2006 11:23
Þýskir kvikmyndaframleiðendur keppast við að semja um kvikmyndaréttinn að íslenkum sakamálasögum. Bókaforlagið Veröld hefur selt kvikmyndaréttinn á Þriðja tákninu eftir Yrsu Sigurðardóttur til þýska kvikmyndaframleiðandans Ziegler Film. Í gær var líka tilkynnt að samningar hefðu tekist milli Réttindastofu Eddu útgáfu hf. og UFA Fernsehproduktion GmbH í Berlín um sölu á réttinum til gerðar sjónvarpsmyndar og sjónvarpsþátta byggðra á sögunni Morðið í hæstarétti eftir Stellu Blómkvist. Regina Ziegler sem vill gera bíómyndir eftir sögum Yrsu, er einn virtasti kvikmyndaframleiðandi Þýskalands en sem dæmi má nefna að fyrr á þessu ári var efnt til sérstakrar sýningar á verkum hennar í Museum of Modern Art í New York. Meðal kvikmynda sem Ziegler Film hefur áður framleitt er Unkenrufe eftir skáldsögu þýska nóbelsskáldsins Günter Grass. Þriðja táknið er væntanlegt á 25 tungumálum í yfir eitt hundrað löndum í öllum byggðum heimsálfum veraldar. Önnur glæpasaga Yrsu, Sér grefur gröf, er nýkomin á markað en nú þegar hefur útgáfurétturinn á henni verið seldur til fjölda landa austan hafs og vestan. Fyrirtækið sem vill gera kvikmyndir eftir sögum Stellu Blómkvist, UFA Fernsehproduktion, er hluti af fjölmiðlarisanum Bertelsman sem áður hafði keypt útgáfurétturinn á öllum bókum Stellu Blómkvist. Fyrirtækið fær einnig forkaupsrétt að öðrum útkomnum glæpasögum Stellu Blómkvist með það að markmiði að þróa sjónvarpsmyndir og sjónvarpsþáttaraðir upp úr bókunum. Undirbúningur að framleiðslunni er þegar hafinn og gert er ráð fyrir hluti hennar fari fram hér á landi. Þetta eru í fyrstu samningar erlendra kvikmyndaframleiðenda um rétt á íslenskum skáldsögum en nokkur slík hafa líka sýnt skáldsagnaröð Arnalds Indriðasonar áhuga.
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Fleiri fréttir „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Sjá meira