Enn loga eldar í Noregi 6. maí 2006 18:45
Skógareldar loga enn á eyjunni Sotru í Noregi og óvíst hvenær slökkviliðsmönnum tekst að ráða niðurlögum þeirra. Flytja þurfti um 70 manns frá heimilum sínum í nótt af ótta við að eldarnir myndu læsa sig í heimili þeirra. Eldarnir kviknuðu á eyjunni Sotru, nálægt Björgvin, síðdegis í gær. Skömmu eftir útkall töldu slökkviliðsmenn að þeir hefðu náð tökum á eldinum og slökkt hann. Sú varð ekki raunin því eldurinn blossaði upp á ný í nótt. Flytja þurfti um sjötíu manns frá heimilum sínum í nótt þar sem óttast var að eldurinn myndi teygja sig í nálæg hús. Eldurinn nær yfir um tíu ferkílómetra svæði frá Morland í suðri til Fjæreida í norðri. Til samanburðar náðu sinueldarnir á Mýrum í síðasta mánuði yfir um eitt hundrað ferkílómetra svæði þannig að eldarnir í Noregi nú eru tíu sinnum minni. En þótt eldarnir á Sotru séu minni breiddu hratt úr sér vegna þess hve mikill vindur var á svæðinu í nótt. Talið er að um íkveikju sé að ræða og lögregla auglýsir því eftir upplýsingum frá almenningi sem gætu hjálpað til við að hafa upp á brennuvarginum. Betur gekk að ráða niðurlögum skógarelda sem kviknuðu í Kanadaskógi í Björgvin í gærkvöldi. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá grilli en efnt hafði verið til grillveislu á strönd rétt í skógarjaðrinum. Skotfærageymsla er staðsett í skóginum og þegar var farið í að fjarlægja allt þaðan út. Á meðan börðust slökkviliðsmenn við eldana og tókst að ráða niðurlögum þeirra um klukkan fjögur í nótt að íslenskum tíma. Þá var þegar búið að tryggja að nálæg hús væru ekki í hættu. Óttast er að eldur kunni að kvikna á ný þar sem vindasamt er á svæðinu. Því verða slökkviliðsmenn á vakt fram eftir nóttu. Yfirvöld í Noregi segja hættu á skógareldum og sinubruna á mörgum svæðum og því er fólk beðið um að fara varlega með eld í því árferði sem nú er.
Erlent Fréttir Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Sektaður fyrir að aka á göngugötu Innlent Fleiri fréttir Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Sjá meira