Erlent

Bílsprengja í París

MYND/AP
Maður lét lífið og annar særðist þegar bílsprengja sprakk í úthverfi Parísar í dag. Maðurinn sem lést var á áttræðisaldri og sat í bílnum þegar hann sprakk. Svo virðist sem sprengju hafi verið komið fyrir undir bíl mannsins. Að sögn franskra fjölmiðla hafði maðurinn komist í kast við lögin og lögreglu grunar að um hafi verið að ræða hefndaraðgerð glæpaflokka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×