Engin niðustaða enn 15. mars 2006 12:10
Rússar og Kínverjar neita að samþykkja tillögu Bandaríkjamanna, Frakka og Breta um að beita Írana refsiaðgerðum vegna kjarnorkuáætlana þeirra. Öryggisráðið mun ræða málið í dag. Fulltrúar þeirra ríkja í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna sem hafa þar neitunarvald, Kína, Frakklands, Rússlands, Bandaríkjanna og Bretlands eru síður en svo sammála um hve langt skuli ganga til að fá Írana til að hætta við kjarnorkuáætlanir sínar. Öryggisráðið krefst þess að Íranar hætti allri auðgun úrans sem ríkin telja að sé liður í því að smíða kjarnorkusprengjur. Íranar hafa aukið framleiðslu á eldflaugum sem geta borið kjarnaodda en þeir fullyrða þó að áhugi þeirra á auðgun úrans sé aðeins í friðsamlegum tilgangi. Á meðan Bretar, Frakkar og Bandaríkjamenn vilja ólmir beita þá refsiaðgerðum, segjast Kínverjar og Rússar andvígur slíkum aðgerðum, því þær skili aldrei góðum árangri. Sendiherra Bandaríkjanna hjá ráðinu, John Bolton sagði ríkisstjórn Bush vilja bregðast fljótt og örugglega við og hafa sagt útilokað að Íranar fái að framleiða úran. Láti þeir verða af því geti vel verið að Bandaríkjamenn ráðist á landið. Bolton sagði þó betra að hafa Öryggisráðið með, komi til þess. Fullskipað Öryggisráðið, alls fulltrúar 15 ríkja, ræðir málið í dag og á morgun.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Fleiri fréttir Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Sjá meira